BAUHAUS báknið við fjallið


Upp úr aldamótum var haldin samkeppni á vegum Reykjavíkurborgar um útilistaverk í Reykjavík.  Undirrituð sendi inn tvær tillögur, önnur komst í úrslitaflokk af níu og ég naut þess að fá að taka þátt í framhaldinu.  Tillögur allra listamann voru frábærar og stundum þegar að ég ek um borgina hugsa ég til alllra verkanna sem voru til sýnis í formi módela í Listasafni Reykjavíkur á sínum tíma og sé fyrir mér ef öll þessi verk hefðu orðið að veruleika hversu áhugaverð Reykjavík væri í dag.  Stjörnuskoðunartorg Rúríar ofan á hitaveitustokkunum í Grafarholti var mega flott.  Stóra vélritunarkúlan hans Kristjáns Guðmundssonar fyrir framan Höfða var líka frábær, eins og verk bróður hans Sigurðar sem var vinningstillagan, slípuðu steinarnir við fjöruna á móti Lögregustöðinni/Skúlagötu. Og þannig mætti lengi telja upp tillögur og vinnu sem fjölmargir listamenn hafa lagt kauplaust eða á kaupi við til þess að auðga umhverfi höfuðborgar Íslands og ekki verið framkvæmdar.  Tillaga mín sem ekki komst í úrslit átti að heita að vera einskonar ”hlið”, landafræðileg merking >Verið velkomin til Reykjavíkur< ..Svo sem bara gróflega unnið en þar sem ég er svo ofurmeðvituð um borgarmörkin og get ómögulega verið hlutlaus um allar þær breytingar sem átt hafa sér stað síðan.  Öll þau mannlegu mannvirki sem risið hafa á þeim átta árum sem liðin eru síðan að áðurnefnd samkeppni átti sér stað og Korpúlfsstaðir virkuðu eins og STÓR bygging þegar að ekið var yfir landamæri Mosfellsveitar og Reykjavíkurborgar. 
Í dag eru Korpúlfsstaðir eins og pínulítil módelsmíði á grænu túni innanum járnbarin skrímslin sem risið hafa sitthvoru megin við þjóðveginn.  Annarssvegar BAUHAUS húsið og hinsvegar Korputorg og íþróttahúsið.  Allt innfluttar verksmiðju-járn-uppsláttarbyggingar, eins og liggja meðfram hraðbrautum víðast hvar í heiminum.
Engin tenging við náttúruöfl eða fegurð umhverfis, sögu lands x eða y. 
Korputorg hefur víst einhverja þjónustu og íþróttarhöllin sömuleiðis, en víkjum að BAUHAUS risakassanum sem þjónar engum tilgangi í dag annað en að vera tómur, steindauður hvítmálaður kassi með stöfum á.  Fjallið, skóræktin og allt annað handan tröllsins virðist eins og tilheyra öðrum heimi, næstum gleymdum vegna þess að það er ekkert sem vísar veginn fyrir gangandi, hjólandi eða akandi menn að náttúrunni.  Nema hvað hér kemur tilgangur þessa athugasemda í tillöguformi:
 
Bauhaus-Barnasafn
Þessi bygging er kjörin til þess að vera BARNASAFN (”Childrens Museum of Reykjavik”) sem er nokkuð sem þessi borg gæti alveg þolað og verið byggt í samvinnu borgar við fjölskyldur sem vilja og geta verið sjálfboðaliðar.  Gef mig hér með fram til frekari útfærslu☺

Bauhaus_Listaháskóli
Einn daginn þegar að ég var í sýniferð með ungan listamann frá Tékkóslavíu á heimleið frá Þingvöllum tókum við lykkjuna upp að Bauhaus húsinu og þá kom hún með þessa snjöllu hugmynd að þarna væri fullkomið hús fyrir Listaháskóla.  Sel það ekki dýrara en ég keypti það.  En þetta er engu að síður snjöll hugmynd.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigþrúður Pálsdóttir
Sigþrúður Pálsdóttir
Myndlistarmaður með fimm ára framhaldsmenntun í arkitektúr. Móðir, amma, umhverfissinni með ástríðu á framtíðarsýn Íslands og þróun heims/jarðar+.  Fædd með sólina 29° í Spordrekamerkinu, tungl í vog og rísandi Steingeit. Áhugamaður um flest vísindi, tækni- og fræðimál..og kannski engin furða þar sem mér var skellt niður til þess að sitja í hjólastól ævilangt eftir slys á tuttugasta aldursári mínu:)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 415

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband